Króatía – Istría

Istria skaginn
Istria skaginn.

Istría (króatíska: Istra) er hjartalaga skagi í norðanverðu Adríahafi. Hann liggur á svæði sem spannar Króatíu, Slóveníu og Ítalíu og hefur um aldir verið eins konar menningarlegur suðupottur þar sem slavnesk, rómversk og germönsk áhrif mætast. Hér er stutt yfirlit yfir sögu skagans og nokkra áhugaverða staði.

Elstu þekktu íbúarnir voru ættflokkar sem Rómverjar kölluðu Histri. Um 177 f.Kr. lagði Rómaveldi skagann undir sig. Þá blómgaðist þar borgarlíf með höllum, hofum og leikhúsum. Borgin Pula varð ein mikilvægasta rómverska borgin við Adríahaf.

Á miðöldum réðu ýmsir yfir Istria-skaganum: fyrst Austur-Gotar, síðan Býsansveldið og loks frankneskir höfðingjar. Á miðöldum efldust áhrif frá Feneyska lýðveldinu, sem stjórnaði stórum hluta Istríu í nær 500 ár.

Eftir fall Feneyja 1797 féll skaginn undir Austurríska keisaradæmið og síðar Austurríki‑Ungverjaland. Eftir fyrri heimsstyrjöldina varð Istría hluti af Ítalíu. Að lokinni síðari heimsstyrjöldinni var svæðið sameinað Júgóslavíu og frá 1991 tilheyrir meginhlutinn Króatíu.

Saga skagans er því eins og lagskiptur jarðvegur; undir hverri borg liggja rómversk stræti, feneysk ráðhús (loggia) og austurrískir kastalar.

Samkvæmt manntali árið 2021 voru íbúar Istríu-skagans 195.237 talsins, en hafði fjölgað í 204.709 í árslok 2024 (áætlaður fjöldi).

Istríu nútímans má líkja við Evrópu í hnotskurn. Þar má ganga úr rómverskum hringleikahúsum út á feneysk torg, drekka kaffi í austurrískum kaffihúsum og enda daginn með sjávarréttum og trufflum undir mildu Adríahafsloftslagi. Lesa má meira um Istríu á Wikipedia.

Sumarið 2024 ferðuðumst við – Benedikt og Guðný – til Poreč og nánar segir frá því ferðalagi í eftirfarandi færslum. Þar er sagt frá fimm borgum sem við heimsóttum, í þeirri röð sem við heimsóttum þær, ásamt brotum úr ferðadagbók Benedikts (Ferðasagan).

Íbúðin í Bellevue Plava Laguna.

01 Ferðin til Poreč

Ferðasagan Við vorum mætt tímanlega í Leifsstöð. Eftir innskráningu og vopnaleit fengum við okkur hr…

Apartments Bellevue Plava Laguna

02 Plava Laguna Beach

Ferðasagan Við dvöldum í Bellevue Plava Laguna, rétt sunnan við Poreč. Þar eru yfir 200 íbúðir af ým…

Við höfnina í Rovinj. Turninn á St. Euphemia kirkjunni gnæfir yfir bæinn

03 Rovinj

Rovinj er ein fegursta strandborgin við Adríahafið. Þar má finna litríkar, feneyskar byggingar og þr…

Rómverska hringleikahúsið við höfnina í Pula

04 Pula

Pula er elsta og stærsta borg Istríuskagans. Rómaveldið lagði borgina undir sig um 177 fyrir Krists …

Novigrad

05 Novigrad

Novigrad er lítil strandbær á vesturströnd Istríuskagans við Adríahafið. Stundum er hún nefnd Novigr…

Umag

06 Umag

Umag er nyrsti strandbær Istríuskagans í Króatíu, skammt frá landamærum Slóveníu. Hann er ekki stór,…

Frá höfninni í Poreč

07 Poreč

Poreč er ein elsta og merkasta strandborgin á Istríuskaga í Króatíu sögulega séð. Hún liggur við ves…