02 Plava Laguna Beach

Ferðasagan

Við dvöldum í Bellevue Plava Laguna, rétt sunnan við Poreč. Þar eru yfir 200 íbúðir af ýmsum stærðum til leigu og ýmis aðstaða eins og veitingastaður, sundlaugar, aðgangur að ströndinni og afþreying af margvíslegu tagi.

Fyrsta daginn byrjuðum við á að fara í verslun hjá móttökunni og kaupa vatn og helstu nauðsynjar þannig að við gátum fengið okkur morgunverð.

Verslunin í Bellevue Plava Laguna
Verslunin í Bellevue Plava Laguna.

Síðan fórum við að skoða umhverfið. Við gengum niður að ströndinni beint fyrir neðan hótelið og þar var margt að skoða. Ekki er um sandströnd að ræða, heldur klettótta strönd með mörgum litlum smávíkum. Alveg einstaklega sjarmerandi. Auðvitað var fólk á ferli, en alls engin örtröð og vorum við fegin því. Hér er allt einhvern veginn laust við yfirþyrmandi túrisma og við glöddumst yfir því hverja mínútu.

Greinilega er mikið lagt upp úr að bjóða upp á fjölbreytta afþreyingarmöguleika og alls staðar er hugsað um börnin því vellir með leiktækjum eru nógir. Auk þess er hægt að baða sig í sjónum, spila tennis, leigja báta, stunda köfun og djöflast á brimbrettum svo eitthvað sé nefnt.

Við fengum okkur kvöldverð á veitingahúsinu við þjónustumiðstöðina. Guðný fékk sér kjúklingabringur með frönskum, en ég ákvað að prófa fiskinn Bass, sem mig hafði lengi langað til að smakka. Hann reyndist vera mjög ljúffengur. Ég fékk heilan fisk með spínati og soðnum kartöflum. Meiriháttar gott. Drakk Heinecken bjór með, en Guðný fékk sér rauðvínsglas. Eftir matinn fékk Guðný sér kaffi og ég fékk mér Cherry Cup, ís með kirsuberjum, rjóma og súkkulaði. Við deildum þessum ágæta dessert. Þegar þessu var lokið kom konan sem þjónaði okkur með tvö hallandi glös með áfengum drykkjum sem við þekktum ekki, en þar var boðið upp á tvær mjög ólíkar tegundir áfengis. Þetta var í boði hússins, enda kunnum við þá list að sýna háttvísi og kurteisi í hvívetna. Það er með það eins og atlæti við hrafninn; hann launar alltaf fyrir sig.